

Markmið blása ekki bara lífi í drauma heldur gera þá að veruleika
Markmið á að setja bæði með huga
og hjarta!

MARKÞJÁLFUN
þegar það er gjá á milli þess sem maður segir og gerir ...
Markþjálfun er samtal sem byggt er á heiðarleika.
Það er hægt að markþjálfa sjálfan sig með því að spyrja sig réttu spurninganna. Slík hugarþjálfun er eitt af aðalsmerkjum þeirra sem ná árangri.
Þegar ástríðan fyrir markmiðinu helst í hendur við skynsemina og rökhyggjuna er ekkert sem getur stoppað þig.



Á bak við tjöldin ...
er fólk sem brennur fyrir því að láta gott af sér leiða






MARKÞJÁLFINN
Hver er markþjálfinn?
Markþjálfinn er samfélags og hugsjónarverkefni starfsmanna Profectus. Allir starfsmenn Profectus eru markþjálfar auk þess sem Profectus býður upp á nám í markþjálfun bæði hér- og erlendis.
Í þeim þúsundum markþjálfasamtala sem við höfum átt við fólk á öllum aldri hættir það aldrei að koma okkur á óvart hversu mikill kraftur leysist úr læðingi þegar fólkið finnur ástríðuna fyrir því sem það er að fást við.
Markmiðin sem fólk setur sér eru ekkert annað en uppskrift af þeim árangri sem það vil og ætlar sér að ná. Auðveldasta leiðin að því að láta dauma sína verða að veruleika er að setja sér markmið og byrja á fyrsta skrefinu!

FRÓÐLEIKUR
Viltu fylgjast með því sem er að gerast?
Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og við látum þig vita...
